3 mánaða andleg einkaþjálfun

Þær byrja hjá mér þegar þær eru þreyttar á að vera þreyttar.

Persónulegt þriggja mánaða ferli fyrir konur sem eru komnar með nóg af því að setja sjálfar sig á bið.

Bókaðu ókeypis kynningarsamtal

30 mínútur · Engin skuldbinding · Við skoðum hvort ferlið henti þér

Geðsjúkraliði frá HA · Diplóma í jákvæðri sálfræði · Andlegur einkaþjálfari

Svava

Þú heldur öllu gangandi. Fyrir aðra.

Kanntu þetta?

Þú manst eftir öllum. En gleymir sjálfri þér.

Þú mætir þegar einhver þarf á þér að halda. Þú heldur utan um það sem þarf að gera. Og einhvers staðar á leiðinni verður auðveldara að setja sjálfa þig á bið en að taka pláss fyrir eigin þarfir.

Kannski hefurðu lesið þig til, hlustað á hlaðvörp eða setið námskeið. Samt finnurðu að það vantar eitthvað sem enginn almennur listi eða æfing getur gefið þér.

Einhvern sem hlustar á þig sjálfa, ekki bara vandamálið.

Hvað er þetta?

Andleg einkaþjálfun, í raun

Þetta er ekki enn eitt sjálfshjálparnámskeiðið. Og þetta snýst ekki um að vera jákvæð alla daga, sama hvernig þér líður í alvörunni.

Í ferlinu færðu faglegt og persónulegt rými til að hægja á þér, sjá mynstrin sem hafa mótað þig og styrkja tenginguna við sjálfa þig.

Ég finn ekki svörin fyrir þig. Ég hjálpa þér að mæta sjálfri þér af heiðarleika, mildi og trausti.

Þetta er ekki klínísk meðferð.
Þetta er persónulegt þjálfunarferli byggt á samtölum, markmiðavinnu, eftirfylgni og sérsniðnum verkfærum.
Ró og jafnvægi
Svava
Konan sem leiðir þig

Ég veit hvernig ósýnileg vanlíðan getur litið út.

Fyrir nokkrum árum var ég sjálf í endurhæfingu, í hjólastól og síðar á hækjum. Á meðan hjálpartækin sáust spurði fólk hvað hefði gerst. Um leið og þau hurfu fór fólk að spyrja hvenær ég kæmi aftur til vinnu.

Ég leit ágætlega út utan frá. Innri líðanin var allt önnur saga.

Ég er geðsjúkraliði frá HA og með diplómu í jákvæðri sálfræði. En eigin reynsla kenndi mér hvað raunveruleg heilun er.

Hún snýst um að hugsa vel um sjálfa sig, ekki af sjálfselsku heldur af sjálfsvirðingu.

Tilboðið

3 mánaða andleg einkaþjálfun

Afmarkað og persónulegt 90 daga ferli með reglulegum einkafundum, eftirfylgni og sérsniðnum stuðningi.

Fjárfesting

35.000 kr.

á mánuði í 3 mánuði
105.000 kr. samtals

Bókaðu kynningarsamtal

✓ Sex 60 mínútna einkafundir á Zoom
Tveir fundir á mánuði þar sem við skoðum stöðuna og ákveðum næstu skref.

✓ Vikuleg eftirfylgni
Þú sendir mér stutta skýrslu og færð endurgjöf og ráðleggingar.

✓ Persónulegur stuðningur milli funda
Þú þarft ekki að bíða fram að næsta fundi þegar eitthvað kemur upp.

Sérsniðnar hugleiðslur

Þú færð hugleiðslur sem styðja við það sem þú ert að vinna með hverju sinni.

Markmiðavinna og ábyrgð

Við skilgreinum hvert þú vilt fara og brjótum leiðina niður í raunhæf skref.

Andleg og persónuleg þróun

Þú lærir að hlusta betur á þína eigin rödd og taka ákvarðanir sem styðja þig.

90 daga vegferð

Hvert ferlið leiðir þig

Hver mánuður byggir ofan á þann fyrri.

01

Hver ert þú í raun?

Við skoðum hvað hefur mótað þig og hvaða mynstur hafa fylgt þér.

Þú byrjar að sjá hvað hefur keyrt þig áfram.
02

Hverju þarftu að sleppa?

Við vinnum með fyrirgefningu, umburðarlyndi og gömul viðbrögð.

Þú hættir smám saman að vinna gegn sjálfri þér.
03

Hver ætlar þú að verða?

Við styrkjum innsæið og mótum nýja sjálfsmynd.

Þú ferð út með meiri ró og sterkari tengingu við sjálfa þig.
Fyrir hverja?

Þetta gæti verið fyrir þig ef…

Þú þarft ekki að vera komin með öll svörin. En þú þarft að vera tilbúin að mæta sjálfri þér.

✦ þú ert komin með nóg af því að setja sjálfa þig aftast á listann

✦ þú nærð ekki almennilega tengingu við þína eigin innri visku

✦ gömul mynstur hafa meiri áhrif á lífið þitt en þú vilt

✦ þú vilt persónulegt ferli, ekki almenna lausn fyrir alla

✦ þú ert tilbúin að fjárfesta tíma, orku og athygli í sjálfri þér

Reynsla annarra

Hvað konur sem hafa unnið með Svövu segja

Hlýja, nærvera og fagmennska eru rauður þráður í því sem konur segja um reynslu sína af Svövu.

“

Ég mæli hiklaust með Reiki-heilunarnámskeiðinu hjá Svöfu. Svava er hlý og heldur vel utan um nemendur sína. Það er magnað að sjá og finna þá umbreytingu sem verður.

Branddís
“

Þessi tvö námskeið í Reiki-heilun hafa gefið mér meira en mig grunaði nokkurn tímann. Takk fyrir að kenna af svona mikilli hlýju og leiða mig í gegnum þetta ferðalag. Ég hlakka til að vinna meira með Reiki.

Guðrún Lárusdóttir
Sjúkraliði og heilsunuddari
“

Svava leiddi námskeiðið af fagmennsku, með sinni góðu nærveru, ljósi og kærleika að leiðarljósi. Þetta var nærandi og heilandi vegferð sem ég mæli svo sannarlega með.

Valgerður
“

Þú færð varla yndislegri manneskju til að leiða þig áfram. Svava er fáséður gullmoli.

Sibba
“

Þetta var sannarlega gefandi og nærandi námskeið. Svava er sterkur og öflugur Reiki-meistari, yndislegur kennari og miðlar þekkingu sinni af mikilli hlýju. Ég er innilega þakklát fyrir lærdómsríku námskeiðin og reynsluna.

Ína Sóley Ragnarsdóttir
“

Svava er heilsteyptur leiðtogi og undursamlegur ljósberi. Hún er fallegur farvegur visku og heilunar og mikil kærleiksvera.

Svava Halldórsdóttir
Spurt og svarað

Áður en þú bókar

Er þetta meðferð?

Nei. Þetta er ekki klínísk meðferð eða staðgengill fyrir heilbrigðisþjónustu.

Hvernig fara fundirnir fram?

Á Zoom, tveir 60 mínútna einkafundir á mánuði, sex fundir samtals.

Hvað gerist í kynningarsamtalinu?

Við skoðum hvar þú ert stödd og hvort þessi nálgun passi við þínar þarfir.

Get ég greitt mánaðarlega?

Já. Verðið er 35.000 kr. á mánuði í þrjá mánuði.

Næsta skref

Þú þarft ekki að bíða þar til þú ert alveg búin á því.

Bókaðu ókeypis kynningarsamtal. Við skoðum hvar þú ert stödd, hvað þú þarft og hvort ferlið sé rétta næsta skrefið.

Bókaðu ókeypis kynningarsamtal

© 2026 Tvær Stjörnur, Inc. allur réttur áskilinn.